Frans páfi
Frans | |
---|---|
![]() Frans árið 2021. | |
![]() Páfi | |
Í embætti 19. apríl 2013 – 21. apríl 2025 | |
Forveri | Benedikt 16. |
Eftirmaður | Leó 14. |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. desember 1936 Búenos Aíres, Argentínu |
Látinn | 21. apríl 2025 (88 ára) Domus Sanctae Marthae, Vatíkaninu |
Þjóðerni | Argentínskur |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Undirskrift | ![]() |
Frans (latína: Franciscus; skírður Jorge Mario Bergoglio SJ; 17. desember 1936 – 21. apríl 2025) var páfi rómversk-kaþólsku kirkjunnar frá 2013 til 2025. Hann var áður biskup í Búenos Aíres í Argentínu og var fyrsti páfinn í yfir 1200 ár sem ekki kemur frá Evrópu. Hann valdi sér páfanafnið Frans til heiðurs Frans frá Assisí.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Jorge Bergoglio var af ítölskum ættum, en faðir hans hafði flutt til Argentínu snemma á 20. öld.[1] Bergoglio fæddist í Búenos Aíres og vann í stuttan tíma sem efnafræðingur og dyravörður í næturklúbbi áður en hann hóf guðfræðinám. Hann átti við erfiða heilsu að glíma frá unga aldri eftir að annað lungað var fjarlægt úr honum vegna sýkingar.[2]
Hann varð kaþólskur prestur árið 1969 og var héraðsforingi Jesúítareglunnar í Argentínu frá 1973 til 1979. Bergoglio var leiðtogi argentínskra Jesúíta á tíma skítuga stríðsins í Argentínu þar sem herforingjastjórn landsins lét um 30.000 stjórnarandstæðinga sína „hverfa“. Gerðir hans í skítuga stríðinu reyndust í seinni tíð viðkvæmt málefni og Bergoglio sætti ásökunum um að hafa ekki gert nóg til að vernda presta undir sinni umsjá gegn ofríki herstjórnarinnar. Sér í lagi var umdeilt að Bergoglio vísaði árið 1976 tveimur prestum úr Jesúítareglunni fyrir „óhefðbundnar skoðanir“ rétt áður en herforingjastjórnin lét ræna þeim og myrða þá.[2]
Eftir kjör Bergoglio til páfa árið 2013 sagði argentínski Nóbelsverðlaunahafinn Adolfo Pérez Esquivel að Bergoglio hefði skort hugrekki sem aðrir biskupar sýndu með því að styðja mannréttindabaráttuna á tíma einræðisins, en tók jafnframt fram að Bergoglio hefði aldrei verið bandamaður herforingjastjórnarinnar og að hann hefði gert það sem hann gat miðað við aldur sinn á þessum tíma.[3][4]
Bergoglio varð erkibiskup Búenos Aíres árið 1998 og var útnefndur kardináli árið 2001 af Jóhannesi Pál 2. páfa. Sem kardináli var Bergoglio þekktur fyrir nægjusemi, bjó á fábrotinn máta og nýtti sér almenningssamgöngur frekar en einkabifreið.[2] Bergoglio átti lengi í erjum við forsetahjónin Néstor og Cristinu Kirchner, sem hann gagnrýndi fyrir að leyfa fátækt að aukast í landinu. Árið 2004 deildi Bergoglio á „athyglissýki og upphrópunaryfirlýsingar“ stjórnarinnar. Samband hans við stjórnina var sérlega stirt í aðdraganda þess að lög voru sett sem heimiluðu hjónaband samkynhneigðra í landinu.[5]
Þegar Benedikt 16. sagði af sér þann 28. febrúar 2013 var Bergoglio kjörinn eftirmaður hans þann 13. mars.
Frans var ætíð rómaður fyrir hógværð sína, áherslu á miskunnsemi Guðs, baráttu gegn fátækt og stuðning við samræður á milli mismunandi trúarhópa. Nálgun hans á páfastól þótti alþýðlegri og óformlegri en hjá forverum hans. Til dæmis dvaldi hann í gestahíbýlunum í Domus Sanctae Marthae frekar en í páfaíbúðunum þar sem forverar hans bjuggu. Hann hélt auk þess upp á einfaldari og látlausari klæðaburð. Hann talaði fyrir því að kristnar kirkjur eigi að vera opnari og velkomnari. Hann studdi hvorki óheftan kapítalisma,[6] marxisma né marxískar túlkanir á frelsunarguðfræði. Frans hélt sig við hefðbundnin kaþólsk viðhorf gagnvart fóstureyðingum,[7] samfélagskennslu, réttindum kvenna innan kirkjunnar og skírlífi presta. Hann sagði þó að það væri ekki hans hlutverk að dæma samkynhneigt fólk sem þjónar guði.[6] Í október 2020 lýsti hann jafnframt yfir stuðningi við staðfesta samvist samkynhneigðra.[8] Í desember 2023 veitti Frans kaþólskum prestum heimild til að blessa samkynja pör svo lengi sem greinamunur væri gerður á því og á eiginlegum hjónavígslum.[9]
Frans var andsnúinnn neysluhyggju, óábyrgri uppbyggingu og talaði fyrir því að hert væri á losun gróðurhúsalofttegunda. Frans lagði sitt af mörkum til að koma á endurreistu stjórnmálasambandi milli Bandaríkjanna og Kúbu.
Frá því hann gaf út ritið Amoris Laetitia (íslenska: „Gleði ástarinnar“) árið 2016 sætti Frans æ opinskárri gagnrýni af hálfu íhaldssamra kaþólikka. Í ritinu sagði Frans að kaþólskum prestum bæri að sýna fráskildu fólki meiri skilning og kærleik.[10] Árið 2017 gagnrýndi Frans ónefnda „svikara“ sem hann sagði standa í vegi umbótum sínum innan stofnana kirkjunnar.[11]
Árið 2019 gekk hópur 19 íhaldssamra biskupa svo langt að hvetja til þess að Frans yrði fordæmdur fyrir villutrú.[12] Frans rak árið 2023 bandaríska biskupinn Joseph Strickland, sem hafði gagnrýnt páfann án afláts fyrir meinta linkind gagnvart fóstureyðingum og of mikið umburðarlyndi gagnvart samkynhneigðum og fráskildu fólki. Næsta ár bannfærði Frans ítalska biskupinn Carlo Maria Vigano, sem hafði sakað páfann um villutrú og harðstjórn, fyrir að hafna yfirvaldi páfa.[11]
Frans lést þann 21. apríl árið 2025, annan í páskum. Hann hafði glímt við erfið veikindi síðustu mánuði lífs síns og hafði dvalið á sjúkrahúsi vegna meðferðar við berkjubólgu í 38 daga skömmu fyrir andlát sitt.[13] Dánarorsök hans var heilablóðfall sem leiddi til þess að hann fór í hjartastopp.[14] Útför hans fór fram þann 26. apríl og var sótt af rúmlega 250 þúsund manns.[15]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Nýr páfi er frá Argentínu“. mbl.is. 13. mars 2013. Sótt 23. apríl 2025.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 Karl Blöndal (15. mars 2013). „Málsvari lítilmagnans í páfastól“. Morgunblaðið. bls. 26-27.
- ↑ „Bergoglio no fue cómplice directo de la dictadura pero no tuvo el coraje para acompañar nuestra lucha“. InfoNews. 14. mars 2013. Afrit af upprunalegu geymt þann 12 júlí 2014. Sótt 23 október 2020.
- ↑ El Nobel de la Paz Pérez Esquivel defiende al Papa durante la dictadura. elmundo.es. 14. mars 2013.
- ↑ „Hver er Frans páfi?“. RÚV. 15. mars 2013. Sótt 25. apríl 2025.
- ↑ 6,0 6,1 Jón Bjarki Magnússon (3. desember 2013). „Kapítalisminn er „ný tegund ógnarstjórnar"“. DV. bls. 18.
- ↑ „Páfi líkir þungunarrofi við leigumorð“. RÚV. 10. október 2018. Sótt 13. október 2018.
- ↑ „Páfi fylgjandi staðfestri samvist samkynhneigðra“. mbl.is. 21. október 2020. Sótt 23. október 2020.
- ↑ Kristinn H. Guðnason (18. desember 2023). „Páfi leyfir prestum að blessa samkynhneigða – Ekki gifta samt“. DV. Sótt 19. desember 2023.
- ↑ „Páfinn sýnir fráskildum skilning“. Viðskiptablaðið. 8. apríl 2016. Sótt 2. maí 2019.
- ↑ 11,0 11,1 Clément Melki (21. apríl 2025). „Barátta Frans páfa gegn íhaldsöflum innan kirkjunnar“. Heimildin. Sótt 23. apríl 2025.
- ↑ Philip Pullella (1. maí 2019). „Conservatives want Catholic bishops to denounce pope as heretic“ (enska). Reuters. Sótt 2. maí 2019.
- ↑ Rafn Ágúst Ragnarsson (21. apríl 2025). „Frans páfi er látinn“. Vísir. Sótt 21. apríl 2025.
- ↑ Magnús Jochum Pálsson (21. apríl 2025). „Greint frá dánarorsök páfans“. Vísir. Sótt 29. apríl 2025.
- ↑ „Yfir 250 þúsund manns við útför páfa“. mbl.is. 26. mars 2013. Sótt 29. apríl 2025.
Fyrirrennari: Benedikt 16. |
|
Eftirmaður: Leó 14. |