
Lyfjaeftirlitsmál og misnotkun lyfja í íþróttum
Finnist hjá íþróttamanni við lyfjapróf lyf/efni sem eru á bannlista, eða ummerki um bannaða aðferð, getur það leitt til allt að fjögurra ára æfinga- og keppnisbanns
Knattspyrnusamband Íslands tekur skýra afstöðu gegn allri misnotkun lyfja/efna og notkunar á bönnuðum aðferðum sem stuðla eiga að bættum árangri í íþróttum.
KSÍ leggur ríka áherslu á að knattspyrnan sé laus við lyfjamisnotkun (doping). Lyfjamisnotkun getur verið mjög skaðleg heilsunni, grefur undan íþróttahugsjóninni og hindrar keppni á jafnréttisgrundvelli.
Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) og Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) hlíta reglum Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA) varðandi lyfjamál í íþróttum.
Mikilvægt er að íþróttamenn sem þurfa að nota lyf geti það. Mjög mikilvægt er að bestu klínísku starfsvenjur og nauðsynlegar rannsóknir séu á bak við greiningar þar sem nota þarf lyf/efni af bannlista sem meðferð.
Þarf að nota lyf/efni af bannlista WADA er skilyrði að ekki sé hægt að nota önnur lyf sem ekki eru á bannlista. Undanþágu getur þurft að sækja um áður en meðferð hefst, eftir að meðferð hefst eða jafnvel einungis sé íþróttamaðurinn boðaður í lyfjapróf. Finnist hjá íþróttamanni við lyfjapróf lyf/efni sem eru á bannlista, eða ummerki um bannaða aðferð, getur það leitt til allt að fjögurra ára æfinga- og keppnisbanns.
Neysla fæðubótarefna getur verið varasöm. Íþróttamenn hafa fallið á lyfjaprófum eftir inntöku fæðubótarefna. Rannsóknir hafa sýnt að fæðubótarefni geta verið menguð af efnum sem eru á bannlista WADA. Ekki er alltaf hægt að treysta því að öll innihaldsefni komi fram utan á pakkningum. Greinist bannað efni við lyfjapróf, eftir neyslu fæðubótarefna, er það alfarið á ábyrgð íþróttamannsins.
Misjafnar reglur gilda fyrir leikmenn í knattspyrnu eftir því hvort að þeir taki þátt í alþjóðlegum verkefnum og í hvaða deildum þeir leika.
Veljið leiðbeiningar eftir því sem við á;
- Leiðbeiningar fyrir landsliðsmenn (A lið og yngri landslið) og leikmenn í Evrópukeppnum félagsliða
- Leiðbeiningar fyrir leikmenn í efstu deildum (karla og kvenna)
- Leiðbeiningar fyrir leikmenn í öðrum deildum og yngri flokkum (karla og kvenna)
- Upplýsingar um lágmarkskröfur UEFA varðandi astma-undanþágur
- Framkvæmd lyfjaprófa – Er hægt að neita því að fara í lyfjapróf?
- Samantekt
Almennt varðandi lyfjamál er bent á www.isi.is og þar er valinn lyfjavefur.
Tenglar:
Lyfjavefur ÍSÍ: http://www.lyfjaeftirlit.is
UEFA: http://www.uefa.org/footballfirst/protectingthegame/antidoping/index.html
Um framkvæmd lyfjaprófa:
1. Af heimasíðu UEFA: "Step by step guide for players"
2. Af lyfjavef ÍSÍ: "Lyfjaeftirlit"
Ef óskað er frekari upplýsinga skal hafa samband við Klöru Bjartmarz, [email protected].