1640
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1640 (MDCXL í rómverskum tölum) var 40. ár 17. aldar og hlaupár sem hófst á sunnudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en miðvikudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- (líklega) Steinunn Finnsdóttir, íslenskt skáld.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Sigurðsson (prestur á Breiðabólstað), skólameistari í Skálholtsskóla og prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð. (f. 1588)
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 6. janúar - Fransk-spænska stríðið (1635-1659): Umsátrinu við Salses lauk með sigri Spánar eftir 6 mánuði.
- 17. janúar - Hollendingar hröktu Portúgali frá Recife í Brasilíu eftir sjóbardaga.
- 9. febrúar - Íbrahím 1. tók við embætti Tyrkjasoldáns við lát bróður síns, Múraðs 4..
- 7. júní - Sláttumannaófriðurinn hófst í Katalóníu.
- 13. júní - Komagatake-eldfjallið gaus í Japan. Uppskerubrrestur af völdum öskufalls varð tugþúsundum að bana.
- 15. júlí - Fyrsti háskóli Finnlands (Kungliga Akademien i Åbo) var stofnaður í Turku.
- 20. september - Fransk-spænska stríðið: Umsátrinu um Tórínó lauk með sigri Frakka.
- 3. nóvember - Karl 1. Englandskonungur boðaði Langa þingið til að semja um friðarskilmála við Skota í Biskupastríðinu.
- 1. desember - Íberíusambandið leystist upp og Portúgal endurheimti sjálfstæði sitt frá Spáni þegar Jóhann 4. var hylltur sem konungur Portúgals. Spánn viðurkenndi ekki portúgölsku konungsfjölskylduna fyrr en árið 1668.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Lokið var að byggja dönsku kauphöllina Børsen.
- Fyrsta kaffihús í Evrópu opnaði í Feneyjum.
- Fyrsta bókin var prentuð í Norður-Ameríku, sálmabók.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 1. apríl - Georg Mohr, danskur stærðfræðingur (d. 1697).
- 9. júní - Leópold 1. keisari hins Heilaga rómverska ríkis (d. 1705).
- 10. júlí - Aphra Behn, enskt leikskáld (d. 1689).
- 6. desember - Claude Fleury, franskur sagnaritari (d. 1723).
- 13. desember - Robert Plot, enskur náttúrufræðingur (d. 1696).
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 9. febrúar - Múrað 4. Tyrkjasoldán (f. 1612).
- 10. apríl - Agostino Agazzari, ítalskt tónskáld (f. 1578).
- 30. maí - Peter Paul Rubens, flæmskur listmálari (f. 1577).