Dregið var í dag í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla og var vettvangurinn höfuðstöðvar KSÍ. Bikarmeistarar Fram sækja KV heim og mótherjar þeirra í úrslitunum í fyrra, Stjarnan, fá Þróttara í heimsókn. Leikirnir fara fram 18. og 19. júní.
Lesa meiraÍ dag, miðvikudag, var dregið í 16 liða úrslitum Borgunarbikars kvenna og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ. Félögin 10 úr Pepsi-deildinni koma inn í keppnina núna ásamt þeim sex félögum sem komust í gegnum tvær fyrstu umferðirnar. Leikirnir fara fram 6. og 7. júní.
Lesa meiraÍslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða á KR velli, sunnudaginn 25. maí kl. 12.00 – 14.00 Keppt verður í 7 manna blönduðum liðum fatlaðra og ófatlaðra skv. reglum Unified football. Liðin eru skipuð 4 fötluðum og 3 ófötluðum.
Lesa meiraFyrir alla leiki í Pepsi-deild karla í kvöld mun iðkandi frá félagi heimaliðs ganga inn á völlinn með liðunum merktur Rauða krossinum. Á Balkanskaga hafa mikil flóð verið að undanförnu og vegna sérstakra tengsla íslenskrar knattspyrnu við knattspyrnumenn frá Balkanskaga vilja félögin sýna þeim stuðning í verki með því að leggja söfnun Rauða krossins vegna flóðanna lið.
Lesa meiraReykjavík fór með sigur í knattspyrnukeppni Grunnskólamóts höfuðborganna en mótið fór fram í Laugardal að þessu sinni. Reykjavík lék sinn síðasta leik í dag og gerði þá jafntefli, 1 - 1, gegn Osló sem tryggði efsta sætið.
Lesa meiraMinnt er á að þau félög sem halda opin mót í sumar fyrir yngri flokka geta pantað prúðmennskuverðlaun hjá KSÍ. Hægt er að fá verðlaunaskjöld fyrir hvern aldursflokk sem er merktur KSÍ og Borgun - "Knattspyrna - leikur án fordóma".
Lesa meiraNú þegar keppni í Íslandsmótum yngri aldursflokka er að fara af stað er gott að hafa í huga hverning skal fara með leikskýrslurnar. Hér að neðan má finna upplýsingar um þetta en mikilvægt er að vanda til verks.
Lesa meiraBreytingar hafa verið gerðar á þremur leikjum í Pepsi-deild karla. Annars vegar er um að ræða færslu á leik Fram og Breiðabliks af Laugardalsvelli á Gervigrasvöllinn í Laugardal, og hins vegar víxlun á heimaleikjum í viðureignum Fylkis og Þórs.
Lesa meiraDregið var í 32-liða úrslit Borgunarbikars karla í höfuðstöðvum KSÍ í dag, fimmtudag, að viðstöddu fjölmenni. Óhætt er að segja að framundan séu margir athyglisverðir leikir, en stórleikur umferðarinnar er klárlega viðureign KR og FH.
Lesa meiraFimmtudagurinn 15. maí næstkomandi er síðasti dagur félagaskipta en félagaskipti verða ekki heimil fyrir meistaraflokks- eða samningsbundna leikmenn aftur fyrr en 15. júlí nema fyrir þá leikmenn sem koma til baka af tímabundnum félagaskiptum. Félagaskipti þurfa að berast, fullkláruð, á skrifstofu KSÍ fyrir miðnætti en mælst er til þess að þau berist fyrir kl. 16:00, fimmtudaginn 15. maí, svo hægt sé að ganga úr skugga um að þau séu fullnægjandi.
Lesa meiraBorgunarbikarinn er kominn á fulla ferð og leikir í 2. umferð karla fara fram í kvöld, þriðjudagskvöld, og á miðvikudag. Dregið verður í 32-liða úrslit í höfuðstöðvum KSÍ á fimmtudag og þar koma Pepsi-deildarliðin inn í keppnina.
Lesa meiraKynningarfundur Pepsi-deildar kvenna fór fram í dag í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar og að venju var þar birt spá forráðamanna félaganna. Stjörnunni er spá titlinum en Aftureldingu og ÍA er spáð falli. Deildin hefst svo með krafti þriðjudaginn 13. maí þegar að fjórir leikir eru á dagskránni
Lesa meiraMótanefnd hefur ákveðið að leikur Vals og Keflavíkur í Pepsi-deild karla verður leikinn á Gervigrasinu í Laugardal, fimmtudaginn 8. maí kl. 20:30. Tveir leikir verða því á vellinum þetta kvöld og hefur tímasetning á leik Víkings og Fram því einnig verið breytt.
Lesa meiraBreiðablik vann 1-0 sigur á Íslandsmeisturunum Stjörnunnar í gær og tryggði sér um leið nafnbótina meistarar meistaranna. Eina mark leiksins kom strax á 6. mínútu en þá skoraði Telma Hjaltalín Þrastardóttir eftir mistök í vörn Stjörnunnar.
Lesa meiraHandshake for Peace er verkefni sem er á vegum FIFA og Friðarverðlauna Nóbels. Verkefnið snýst um að leikmenn sýni strax að leik loknum vinskap og virðingu sem felst í því að takast í hendur eftir leik. Með þessari táknrænu athöfn skilja liðin sem vinir og jafningjar.
Lesa meiraStjarnan og Breiðablik mætast í kvöld, föstudaginn 2. maí, í Meistarakeppni kvenna en leikurinn hefst kl. 19:15 á Samsung vellinum í Garðabæ. Í þessum árlega leik mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta keppnistímabils.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember

maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
Leiðbeiningar Úrslit leikja í öllum flokkum má skrá með SMS-skeyti eða í gegnum aðgang viðkomandi félags að ksi.is í gegnum Séraðgerðir hér að ofan