Í dag fór fram kynningarfundur Pepsi-deildanna 2011 en þar eru m.a. kynntar spár forráðamanna félaga í Pepsi-deildum karla og kvenna. Val er spáð sigri í Pepsi-deild kvenna en í karladeildinni er því spáð að FH hampi titlinum.
Lesa meiraUndanúrslit A deildar Lengjubikars kvenna fara fram í kvöld en úrslitaleikurinn sjálfur fer fram sunnudaginn 1. maí. Í Boganum mætast Þór/KA og Stjarnan og hefst sá leikur kl. 17:15. Á Hlíðarenda kl. 19:00 leika svo Valur og Breiðablik.
Lesa meiraMótanefnd KSÍ hefur samþykkt ósk Fylkis og Stjörnunnar um að heimaleikjum þeirra í Pepsi-deild kvenna verði víxlað.
Lesa meiraAfturelding vann Tindastól/Hvöt í úrslitaleik B deildar Lengjubikars karla en úrslitaleikurinn fór fram í Akraneshöllinni í gær. Lokatölur urðu 4 - 2 fyrir Mosfellinga eftir að þeir höfðu leitt í leikhléi, 3 - 0.
Lesa meiraValsmenn tryggðu sér sigur í A deild Lengjubikars karla í gær með því að leggja Fylkismenn úrslitaleik. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma, 1 - 1, en Valsmenn skoruðu tvö mörk í framlengingu og tryggðu sér titilinn.
Lesa meiraMánudaginn 25. apríl, annan í páskum, verða leiknir úrslitaleikirnir í A og B deildum Lengjubikars karla. Í Kórnum kl. 19:00 leika Fylkir og Valur í úrslitum A deildar karla en fyrr sama dag, kl. 14:30, leika Tindastóll/Hvöt og Afturelding til úrslita í B deild karla. Sá leikur fer fram í Akraneshöllinni.
Lesa meiraÞó svo að margir landsmenn taki því rólega í páskafrí næstu daga þá mun knattspyrnufólk vera önnum kafið á knattspyrnuvellinum og fagna þannig sumarkomu. Leikið er í Lengjubikar karla og kvenna og ráðast úrslitin í nokkrum deildum á næstu dögum.
Lesa meiraKnattspyrnusamband Íslands sendir landsmönnum öllum sínar óskir um gleðilega páskahátíð. Skrifstofa KSÍ verður lokuð um páskahátíðina en opnar að nýju, kl. 08:00, þriðjudaginn 26. apríl.
Lesa meiraÁ morgun, miðvikudaginn 20. apríl, verður fyrri undanúrslitaleikur A-deildar Lengjubikars karla en þá mætast Fylkir og KR á Fylkisvelli kl. 19:00. Síðari undanúrslitaleikurinn fer svo fram á fimmtudaginn, skírdag, 21. apríl en þá leika Valur og FH í Kórnum. Sá leikur hefst kl. 15:00.
Lesa meiraKSÍ hefur fundað með aðildarfélögum sínum á Norðurlandi og Austurlandi síðustu daga en framundan eru einnig fundir á Suðurlandi og Suðurnesjum. Verða þeir fundir haldnir eftir páskahátiðina.
Lesa meiraÞað voru bikarmeistararnir í FH sem tryggðu sér sigur í Meistarakeppni karla í gær þegar þeir lögðu Íslandsmeistarana í Breiðablik. Leikið var í Kórnum og tryggði FH sé sigur með því að skora þrjú mörk án þess að Blikar næðu að svara fyrir sig.
Lesa meiraMótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í landsdeildum karla og kvenna sem og VISA bikar karla og kvenna. Mikilvægt er að félögin sjái til þess að öll eldri drög verði tekin úr umferð til þess að forðast misskilning.
Lesa meiraBreiðablik og FH mætast í Meistarakeppni karla laugardaginn 16. apríl. Leikið verður í Kórnum og hefst leikurinn kl. 18:15. Þetta er árlegur leikur á milli Íslandsmeistara og bikarmeistara síðasta tímabils og eru Blikar handhafar Íslandsmeistaratitilsins en FH handhafar VISA bikarsins.
Lesa meiraGunnar Gylfason, starfsmaður KSÍ, verður vettvangsstjóri UEFA (UEFA Venue Director) á leik portúgalska liðsins Braga og Dynamo Kiev frá Úkraínu, en liðin mætast í Portúgal á fimmtudag. Þetta er síðari viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en fyrri leiknum, í Kænugarði lauk með 1 – 1 jafntefli.
Lesa meiraFyrirhuguðum fundi KSÍ með aðildarfélögum á Suðurnesjum hefur verið frestað. Fundurinn átti að vera fimmtudaginn 14. apríl á Flughótelinu í Keflavík en hefur verið frestað um óákveðinn tíma og verður nánar auglýstur síðar.
Lesa meiraÞegar Íslandsmótið í knattspyrnu hefst 1. maí næstkomandi er það í 100. skiptið sem mótið fer fram. Knattspyrnusambandið fékk af þessu tilefni Sigmund Ó. Steinarsson til þess að rita sögu Íslandsmótsins í 100 ár. Fyrra bindið er komið í prentun og verður fyrsta eintakið afhent, 29. apríl.
Lesa meiraMiðvikudaginn 13. apríl nk. boðar KSÍ til fundar með aðildarfélögum á Austurlandi á Fjarðarhóteli Reyðarfirði kl. 16.30. Forsvarsmenn félaga á svæðinu hvattir til þess að mæta. Aðildarfélög eru vinsamlegast beðin um að staðfesta hvort fulltrúar þeirra mæta á fundinn.
Lesa meiraMánudaginn 11. apríl nk. boðar KSÍ til fundar með aðildarfélögum á Norðurlandi á Hótel KEA á Akureyri kl. 17.00. Forsvarsmenn félaga á svæðinu eru hvattir til þess að mæta. Fyrirhugaðir eru svo fundir í öðrum landshlutum á næstunni.
Lesa meiraVegna bágborins ástands keppnisvalla víða um land hefur stjórn KSÍ samþykkt að fresta upphafi Íslandsmótsins 2011, sem er 100. Íslandsmótið frá upphafi, um eina viku, og munu fyrstu leikirnir fara fram 8. maí. Af þessum sökum verður ekkert hlé gert á Íslandsmótinu vegna þátttöku U21 landsliðs karla í úrslitakeppni EM í Danmörku í sumar.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember

maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
Leiðbeiningar Úrslit leikja í öllum flokkum má skrá með SMS-skeyti eða í gegnum aðgang viðkomandi félags að ksi.is í gegnum Séraðgerðir hér að ofan