The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20151124091026/http://www.ksi.is/um-ksi/Heidursvidurkenningar/
Heiðursviðurkenningar

Heiðursviðurkenningar

Landsliðsmerki, heiðursmerki og heiðurskross

Hér að neðan gefur að líta yfirlit yfir þau heiðursmerki sem KSÍ afhendir við sérstök tilefni.  Þar sem heimildir um eldri viðurkenningar geta verið óljósar eru allar ábendingar vel þegnar. Ef upplýsingarnar í nafnalista hér að neðan eru ekki réttar eða ef einhver nöfn vantar, þá hafið endilega samband.

Heiðursviðurkenningar - Listi yfir nöfn viðtakenda og viðurkenningu


Nýliðamerki

Nýliðamerki KSÍ

Nýliðamerki á hvítum grunni með rauðum stöfum skal sæma þá leikmenn, sem leika í fyrsta sinn með landsliði Íslands í milliríkjaleikjum, þó ekki A-landsliði.  Stærð 1,7 x 1,55 cm.


Landsliðsmerki

Landsliðsmerki KSÍ

Landsliðsmerki á gylltum grunni með bláum bókstöfum skal sæma þá leikmenn sem leika í fyrsta sinn í A-landsliði Íslands í milliríkjaleikjum. Stærð 1,7 x 1,55 cm.


Sambandsmerki

Sambandsmerki KSÍ

Sambandsmerki á hvítum grunni með bláum bókstöfum skal sæma þá sem leika gegn íslenska landsliðinu í milliríkjaleikjum, erlenda knattspyrnuleiðtoga, einnig íslenska menn, sem unnið hafa að vexti og viðgangi knattspyrnuíþróttarinnar.  Stærð 1,7 x 1,55 cm.        


Heiðursmerki úr silfri

Silfurmerki KSÍ

Heiðursmerki þetta veitist þeim sem unnið hafa vel og dyggilega að eflingu knattspyrnuíþróttarinnar í áratug eða lengur.  Stærð 1,7 x 1,55 cm.


Heiðursmerki úr gulli

Gullmerki KSÍ

Heiðursmerki þetta veitist aðeins þeim, sem unnið hafa knattspyrnuíþróttinni langvarandi og þýðingarmikil störf.  Stærð 1,7 x 1,55 cm.


Heiðurskross úr gulli

Heiðurskross KSÍ

Heiðurskross þessi, sem er æðsta heiðursmerki KSÍ, veitist aðeins undir alveg sérstökum kringumstæðum þeim, sem unnið hafa knattspyrnuíþróttinni ómetanlegt gagn. Stærð 5 x 5 cm.  Heiðurskrossi skal einnig fylgja sérstakt heiðursskjal.