The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140822003310/http://www.ksi.is/mannvirki/nr/11560
Mannvirki

SÍGÍ boðar til fundar um klakavandamál á golf- og knattspyrnuvöllum

Fer fram miðvikudaginn 29. janúar kl. 14:00 í höfuðstöðvum KSÍ

28.1.2014

SÍGÍ boðar til fundar um klakavandamál á golf- og knattspyrnuvöllum, miðvikudaginn 29. janúar kl. 14:00, á 3. hæðinni hjá KSÍ.

Á fundinn mætir Bjarni E. Guðleifsson prófessor, en hann hefur rannsakað þetta vandamál til fjölda ára.

Hann mun fyrripart dags á morgun taka stöðuna á nokkrum völlum á Reykjavíkursvæðinu til að vera sem best upplýstur um þetta vandamál sem farið er að herja á stór Reykjavíkursvæðið af miklum þunga.

Dagsskráin hefst á fyrirlestri frá Bjarna, eftir það verða svo almennar umræður um þetta eina mál.   

Allir velkomnir, ekki þarf að skrá sig, bara að mæta og fræðast.   











2011Forsidumyndir2011-010