The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140820130523/http://www.ksi.is/um-ksi/Merki-ksi/
Merki KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands

Merki KSÍ

PNG, EPS og PDF form

Hér er hægt að skoða og sækja merki KSÍ.

Athugið að merki KSÍ og þar með talinn landsliðsbúninginn og leikmenn íklædda honum er óheimilt að nota opinberlega nema með samþykki KSÍ. 

Aðildarfélögum KSÍ er heimilt að nota merki KSÍ og þar með talinn landsliðsbúninginn og leikmenn íklædda honum í knattspyrnulegum tilgangi.  Öll óréttmæt eða óviðeigandi notkun varðar við lög og reglugerðir KSÍ.

Öðrum en samstarfsaðilum KSÍ er óheimilt að nota merki KSÍ og þar með talinn landsliðsbùninginn og leikmenn íklædda honum í markaðslegum tilgangi. 

Merki Knattspyrnusambands Íslands var tekið í notkun á 50 ára afmæli sambandsins árið 1997.  Merkið er samsett úr einföldum, sterkum þáttum sem sýna vel starfsemi KSÍ. 

Knötturinn vísar til knattspyrnuíþróttarinnar, en bylgjan með línunum þremur vísar til fánalita Íslands, sem og til hraða og hreyfingar knattarins.

Merki KSÍ á PNG   (hentar á vef og til prentunar)

Merki KSÍ á PDF    (hentar til prentunar eða til skjánotkunar)

Merki KSÍ á EPS    (hentar til prentunar, auglýsingagerðar eða umbrots)

Notkunarleiðbeiningar - Instructions for use 



Merkið má aðeins nota í þeim litum sem hér eru tilgreindir, og á hvítum grunni. Sé merkið notað á lituðum grunni verður að draga hvítar útlínur umhverfis merkið. 
Lögun merkisins eða litum má ekki breyta á nokkurn hátt.
 










2011Forsidumyndir2011-010