The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140821161759/http://www.ksi.is/mot/nr/9855
Mótamál
Knattspyrnusamband Íslands

Fjárhagslegur stuðningur við aðildarfélög

Öll gjöld í jöfnunarsjóð meistaraflokka falla niður á þessu ári

26.1.2012

 

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar fjárhagslegan stuðning við aðildarfélög sambandsins.

  • Eins og síðustu ár tekur KSÍ yfir ferða- og uppihaldskostnað dómara fyrir árið 2012 í öllum deildum beggja kynja og í leikjum Valitor-bikarsins. Þar með er ljóst að niður falla öll gjöld í jöfnunarsjóði sem gerð er krafa um í þátttökutilkynningum meistaraflokks á þessu ári sem og allar slíkar greiðslur til dómara af hálfu aðildarfélaga á vettvangi í þeim keppnum þar sem það fyrirkomulag hefur verið viðhaft. Við þetta lækkar kostnaður félaganna um 30 milljónir króna.
  • Framlag til þeirra 24 félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ í Pepsi-deild karla og 1. deild karla verður 500 þúsund krónur á hvert félag. Framlagið verður greitt í tveimur hlutum, 250 þúsund 1. febrúar svo fremi sem félag hafi staðið í skilum á leyfisgögnum 15. janúar, og 250 þúsund 1. mars svo fremi sem félag hafi gert skil á fjárhagslegum gögnum 20. febrúar.










Skráning úrslita

Leiðbeiningar Úrslit leikja í öllum flokkum má skrá með SMS-skeyti eða í gegnum aðgang viðkomandi félags að ksi.is í gegnum Séraðgerðir hér að ofan


2011Forsidumyndir2011-010