The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20171009060355/http://www.ksi.is/fraedsla/2005/11/14
Fræðsla
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands

Fjórir hlutu Gullmerki KÞÍ

Aðalfundur félagsins fór fram á laugardag

14.11.2005

Á aðalfundi KÞÍ - Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands síðastliðinn laugardag veitti formaður félagsins, Sigurður Þórir Þorsteinsson, fjórum aðilum gullmerki KÞÍ fyrir framlög sín til þjálfaramenntunar í knattspyrnu hér á landi.

Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, fengu gullmerki KÞÍ fyrir framlag sitt til eflingu og uppbyggingu þjálfaramenntunar í íslenskri knattspyrnu.

Bjarni Stefán Konráðsson og Bjarni Jóhannsson, sem báðir eru kunnir knattspyrnuþjálfarar hér á landi, fengu gullmerki KÞÍ fyrir störf sín við þjálfun og þjálfaramenntun í íslenskri knattspyrnu og langa stjórnarsetu í KÞÍ.




Fræðsla




Aðildarfélög




Aðildarfélög