The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20171014165914/http://www.ksi.is/fraedsla/2007/04/21
Fræðsla
Dómaraflauta eða hljóðfæri?

Landsdómararáðstefna í Hveragerði

40 dómarar sitja ráðstefnu um helgina

21.4.2007

Um þessa helgi hittast um 40 landsdómarar á Hótel Örk í Hveragerði til þess að undirbúa sig fyrir sumarið.  Farið verður yfir áherslur sumarsins sem og breytingar á knattspyrnulögunum.

Eins og áður er fenginn erlendur fyrirlesari á ráðstefnuna og að þessu sinni að það Alan Snoddy frá Norður Írlandi.  Snoddy hefur mikla reynslu sem milliríkjadómari og mun miðla af reynslu sinni til íslenskra dómara.

Dómararnir hafa í vikunni gengist undir nýtt þrekpróf og skriflegt próf er það fyrsta sem tekur á móti þeim á ráðstefnunni um helgina.




Fræðsla




Aðildarfélög




Aðildarfélög