The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140821004928/http://www.ksi.is/fraedsla/2008/01

Fræðsla

Frá afhendingu Grasrótarviðurkenninga 2007

KSÍ aðili að Grasrótarsáttmála UEFA - 31.1.2008

Í dag var undirrituð staðfesting þess efnis að KSÍ hafi verið samþykkt inn í Grasrótarsáttmála UEFA.  Það voru 9 þjóðir sem voru samþykktar inn í Grasrótarsáttmála UEFA að þessu sinni og eru 30 þjóðir orðnar aðilar að sáttmálanum. Lesa meira
 
Dómarar leiða lið Þýskalands og Englands til vallar fyrir úrslitaleik EM U19 kvenna á Íslandi

Dómaranámskeið eingöngu fyrir konur - 29.1.2008

Mikill áhugi er innan vébanda KSÍ að fá fleiri konur í dómgæslu.  Hugmyndin er að halda dómaranámskeið eingöngu fyrir konur.  Farið verður yfir knattspyrnulögin og síðan mun Gylfi Orrason fara í praktísku hliðina á dómgæslunni. Lesa meira
 
Þjálfari að störfum

KSÍ B próf (UEFA B próf) laugardaginn 16. febrúar - 29.1.2008

Laugardaginn 16. febrúar, milli kl. 10:00 og 12:00, stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt. Lesa meira
 
Aðstoðardómari að störfum á leik Íslands og Svíþjóðar

Unglingadómaranámskeið á Húsavík í dag - 24.1.2008

Síðustu daga hafa verið haldin dómaranámskeið á Norðurlandi og hefur Magnús Jónsson, dómarastjóri KSÍ, verið með umsjón með þessum námskeiðum.  Síðasta námskeiðið í þessari hrinu verður haldið í dag, fimmtudag og fer fram á Húsavík. Lesa meira
 
ÍA

Umfjöllun um Akranes á vefsíðu UEFA - 15.1.2008

Á morgun mun birtast á heimasíðu UEFA umfjöllun um knattspyrnubæinn Akranes og þann fjölda atvinnumanna er koma þaðan.  Aðilar frá heimasíðu UEFA voru hér í sumar og tóku upp efni sem birt verður á morgun. Lesa meira
 
Afturelding

Afturelding leitar að yfirþjálfara - 15.1.2008

Barna- og unglingaráð Knattspyrnudeildar Aftureldingar leitar að yfirþjálfara fyrir 14 aldursflokka barna- og unglingastarfsins.  Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað fyrir 25. janúar. Lesa meira
 
Dómaraflauta eða hljóðfæri?

Unglingadómaranámskeið á Norðurlandi 21. - 24. janúar - 14.1.2008

Unglingadómaranámskeið verða haldin á vegum KSÍ á Norðurlandi vikuna 21. – 24. janúar.  Ekkert þátttökugjald en þátttakendur þurfa að hafa náð 15 ára aldri.  Dagskrána má sjá hér neðar í fréttinni. Lesa meira
 
Knattspyrnusnillingar framtíðarinnar

Dagsetningar fyrir knattspyrnuskóla og úrtökumót - 10.1.2008

Knattspyrnusamband Íslands stendur fyrir knattspyrnuskóla drengja og stúlkna á Laugarvatni líkt og undanfarin ár.  Ennfremur heldur KSÍ úrtökumót fyrir drengi og stúlkur og er þetta í fyrsta skiptið sem úrtökumót stúlkna fer fram. Lesa meira
 
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands

Þjálfaraferð til London - 9.1.2008

Norska knattspyrnuþjálfarafélagið endurtekur hinar vel heppnuðu þjálfaraferðir fyrri ára og bíður nú í þjálfaraferð til Englands 31. janúar til 3. febrúar. Íslenskum knattspyrnuþjálfurum gefst kostur á að fara með í ferðina. Lesa meira
 
Þjálfari að störfum

KSÍ B próf (UEFA B próf) fer fram laugardaginn 16. febrúar - 8.1.2008

KSÍ heldur KSÍ B próf (UEFA B próf) í þjálfaramenntun laugardaginn 16. febrúar klukkan 10 í Fræðslusetri KSÍ í Laugardal.  Réttindi til próftöku hafa allir þjálfarar sem hafa lokið fyrstu fjórum þjálfarastigum KSÍ (KSÍ I, II, III og IV) Lesa meira
 
Þjálfari að störfum

3. stigs þjálfaranámskeið á Akureyri 25.-27. janúar - 8.1.2008

KSÍ heldur 3. stig þjálfaranámskeið á Akureyri helgina 25.-27. janúar. Um er að ræða fyrsta KSÍ III námskeiðið sem fram fer á landsbyggðinni. Námskeiðið fer fram í félagsheimi Þórs og í Boganum og er námskeiðið bæði bóklegt og verklegt. Lesa meira
 
Þjálfari að störfum

2. stigs þjálfaranámskeið á Reyðarfirði 18.-20. janúar - 8.1.2008

KSÍ heldur 2. stig þjálfaranámskeið á Reyðarfirði helgina 18.-20. janúar. Námskeiðið fer fram í Barnaskólanum á Reyðarfirði og í Fjarðabyggðarhöllinni og er bæði bóklegt og verklegt. Lesa meira
 
Þjálfarar að störfum

3. stigs þjálfaranámskeið í Reykjavík 18.-20. janúar - 8.1.2008

KSÍ heldur 3. stig þjálfaranámskeið í Reykjavík helgina 18.-20. janúar. Námskeiðið fer fram í Fræðslusetri KSÍ í Laugardal.  Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á [email protected] og eru áhugasamir hvattir til þess að skrá sig. Lesa meira
 
FIFA_domari

Héraðsdómaranámskeið 17. janúar - 7.1.2008

Fimmtudaginn 17. janúar kl. 18:00 verður haldið námskeið í höfuðstöðvum KSÍ fyrir héraðsdómara.  Námskeiðið er hugsað fyrir héraðsdómara og þá unglingadómara sem hafa áhuga á að öðlast héraðsdómararéttindi. Lesa meira
 
Dómaraflauta eða hljóðfæri?

Frítt á unglingadómaranámskeið - 4.1.2008

Frá og með 1. janúar 2008 verða þátttakendur á unglingadómaranámskeiðum ekki krafðir um þátttökugjöld.  Hér er um nýbreytni að ræða og liður í því að fjölga dómurum og efla dómgæsluna. Lesa meira
 
Þjálfari að störfum

Þjálfaranámskeið á næstu mánuðum - 3.1.2008

KSÍ heldur að venju fjölda þjálfaranámskeiða á þessu ári og eru fyrstu námskeiðin á dagskránni strax í janúar.  Hér að neðan má sjá þau námskeið sem liggja fyrir árið 2008 en önnur námskeið og fyrirlestrar eru í vinnslu og verða auglýst nánar síðar. Lesa meira
 
Dagur Sveinn Dagbjartsson

Nýr starfsmaður í fræðslumálum hefur hafið störf - 3.1.2008

Dagur Sveinn Dagbjartsson er nýr starfsmaður í fræðslumálum og hefur hann hafið störf.  Dagur hefur lokið B.S. gráðu í íþróttafræðum frá KHÍ á Laugarvatni og mun verða með Sigurði R. Eyjólfssyni í fræðslumálum KSÍ. Lesa meira
 










2011Forsidumyndir2011-001