Spilaðu með - Foreldrabæklingur KSÍ
Fræðsluefni fyrir foreldra barna í knattspyrnu
Á undanförnum árum hefur stuðningur og þátttaka foreldra barna í knattspyrnu stóraukist, en sífellt verður algengara að foreldrar mæti á æfingar og leiki barna sinna og taki virkan þátt í knattspyrnustarfinu. Þetta hefur eflt knattspyrnu barna og knattspyrnuhreyfinguna í heild sinni og Knattspyrnusamband Íslands fagnar þessari jákvæðu þróun.
Knattspyrna er lang vinsælasta íþróttagreinin á Íslandi og í öllum heiminum. Mikill meirihluti iðkenda hér á landi eru börn og unglingar undir 16 ára aldri. Öllum þessum fjölda fylgja fjölskyldur sem styðja við börnin í knattspyrnuiðkun þeirra og mæta á völlinn.
KSÍ hefur gefið út bækling með leiðbeiningum og tilmælum til foreldra barna er stunda æfingar og keppni. Bæklingurinn er hugsaður sem fræðsluefni sem hægt er að nota á foreldrafundum. Bæklingnum er dreift til allra félaga á Íslandi og er hugsaður sem fræðsluefni fyrir foreldra barna í knattspyrnu.
Spilaðu með - Foreldrabæklingur KSÍ
GOAL! - Brochure for parents - In Icelandic, English, Polish and Spanish