The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140821010514/http://www.ksi.is/fraedsla/nr/8149
Fræðsla
Frá KSÍ III í janúar 2010.  Lengst til vinstri í efri röð má sjá Lars Lagerback

KSÍ III þjálfaranámskeið um næstu helgi

Námskeiðið er opið öllum þeim sem hafa lokið við KSÍ I og KSÍ II

12.1.2010

Helgina 15.-17. janúar heldur Knattspyrnusamband Íslands 3. stigs þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. KSÍ hélt slíkt námskeið einnig um síðustu helgi þar sem Lars Lagerback, fyrrverandi A-landsliðsþjálfari Svíþjóðar, heimsótti landann og tók út námskeiðið en Lagerback er meðlimur í JIRA-starfshópnum sem er hópur á vegum UEFA og hefur yfirumsjón með þjálfarmenntun í Evrópu. Myndin hér að neðan var tekin að námskeiðinu loknu.

Námskeiðið um næstu helgi er opið öllum þeim sem hafa lokið við KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.  Námskeiðsgjaldið er 22.000 kr.

Opnað hefur verið fyrir skráningu en hægt er að skrá sig með því að senda eftirfarandi upplýsingar á [email protected] eða hringja í síma 510-2977: Nafn, kennitala, símanúmer, tölvupóstfang og félag.

Dagskrá

Frá KSÍ III í janúar 2010. Lengst til vinstri í efri röð má sjá Lars Lagerback











2011Forsidumyndir2011-010