
Íþróttafélagið Völsungur auglýsir eftir knattspyrnuþjálfurum
Einnig auglýst eftir yfirþjálfara fyrir yngri flokka
Íþróttafélagið Völsungur auglýsir eftir knattspyrnuþjálfurum fyrir 3. til 7.flokk drengja og stúlkna. Einnig auglýsir félagið eftir yfirþjálfara fyrir yngri flokka félagsins.
Æskilegt er að umsækjendur búi yfir menntun og/eða reynslu af knattspyrnuþjálfun.
Frábært tækifæri fyrir metnaðarfulla einstaklinga að starfa í góðu umhverfi hjá metnaðarfullu félagi.
Öllum umsóknum verður svarað en áhugasamir geta sent inn umsóknir eða fyrirspurnir á netfangið [email protected] fyrir föstudaginn 15.september. Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og reynslu.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Gunnarsson í síma 895-3302