The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140821085545/http://www.ksi.is/fraedsla/thjalfaraskoli-ksi/
Þjálfaraskóli KSÍ
Þjálfari að störfum

Þjálfaraskóli KSÍ

Leiðbeinendur fyrir þjálfara og stuðningur KSÍ við aðildarfélögin

KSÍ kynnir Þjálfaraskóla KSÍ.  Aðildarfélög KSÍ og starfandi knattspyrnuþjálfarar hjá þeim geta haft samband við fræðsludeild KSÍ og fengið leiðbeinanda frá KSÍ í heimsókn á 3-4 æfingar.  Þjálfarinn fær einstaklingskennslu/leiðsögn frá leiðbeinandanum við sínar raunverulegu aðstæður við að þjálfa sinn flokk.  Með þessu styður KSÍ enn frekar við þjálfaramenntun og starf félaganna.

Markmið Þjálfaraskóla KSÍ:

Markmiðið með Þjálfaraskóla KSÍ er að veita þjálfurum  tækifæri til að fá reynslumikinn leiðbeinanda sem veitir viðkomandi þjálfara einstaklingskennslu.  Með þessu deilist verðmæt þekking sem styrkir starf og hæfni þjálfarans.  Þjálfaraskóli KSÍ snýst þannig um að hæfur og reynslumikill þjálfari (leiðbeinandi) nýti reynslu sína og færni í að hjálpa öðrum þjálfara að verða betri í sínu starfi með því að gefa af sér og deila þekkingu sinni og reynslu.  Einstaklingskennsla er frábær leið til að læra.

Aðildarfélög KSÍ geta nýtt sér Þjálfaraskóla KSÍ m.a. á eftirfarandi hátt:

·         Nýr þjálfari er ráðinn til starfa hjá félaginu sem þarf á leiðsögn að halda

·         Reynslulítill þjálfari þarf leiðsögn á ákveðnu sviði, t.d. hvernig þjálfa á markmenn

·         Metnaðarfullur þjálfari vill verða ennþá betri í starfi og fær því leiðbeinanda til að fylgjast með sér og veita endurgjöf

·         Verðlaun fyrir góða þjálfara sem starfa hjá félaginu og félagið vill umbuna

·         Félag sem er ekki með yfirþjálfara getur með þessu móti fengið leiðbeinanda inn á æfingar til að styðja við bakið á þjálfurum félagsins og efla þannig enn frekar gæðastarfið 

·         Endurmenntun (Þjálfaraskóli KSÍ telur sem 9 tímar í endurmenntun). 

Leiðbeinandi frá KSÍ mun m.a. fylgjast með viðkomandi þjálfara að störfum, segja honum til, svara spurningum og benda honum á leiðir til að verða ennþá hæfari í starfi.

Kostnaður:

Miðað er við 3 heimsóknir, 90 mínútna æfing og 30 mínútur spjall eftir æfingu.  Ef æfingin er 60 mínútur er miðað við 4 heimsóknir.  Kostnaður er alls 30.000 krónur.  KSÍ greiðir helming af kostnaðinum (15.000 krónur) og félagið/þjálfarinn hinn helminginn (15.000 krónur).  Verð félagsins/þjálfarans er það sama og kostar á KSÍ I þjálfaranámskeið.

Fyrirkomulag:

Senda þarf tölvupóst merktur Þjálfaraskóli KSÍ á [email protected] þar sem kemur fram ósk um að fá KSÍ leiðbeinanda í heimsókn.  Taka þarf fram nafn félags, nafn þjálfara og hvaða flokk hann þjálfar og hvenær er óskað eftir heimsókn ásamt því hvers vegna er óskað eftir heimsókninni (t.d. markmannsþjálfun).  Fræðsludeild KSÍ og/eða Leiðbeinandinn verður svo í sambandi við félagið og þjálfarann sjálfan.  Félagið leggur 15.000 króna þátttökugjald inn á reikning KSÍ áður en fyrsta heimsóknin fer fram og KSÍ sér svo um að greiða leiðbeinandanum.  Athugið að allt þetta ferli þarf að fara fram með milligöngu fræðsludeildar KSÍ, KSÍ mun ekki samþykkja greiðslur ef að félag/þjálfari hefur beint samband við leiðbeinanda án þess að samþykki KSÍ liggi fyrir áður.

Allar nánari upplýsingar veita:

Arnar Bill Gunnarsson

Fræðslustjóri KSÍ

510-2978

[email protected]

 

Dagur Sveinn Dagbjartsson

Fræðsludeild KSÍ

510-2977

[email protected]










2011Forsidumyndir2011-001