
Víking vantar þjálfara fyrir 3. flokk kvenna
Þarf að hafa reynslu af þjálfun og tilskilin réttindi frá KSÍ
Unglingaráð knattspyrnudeildar Víkings R. óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan þjálfara fyrir 3. flokk kvenna. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af þjálfun og tilskilin réttindi frá KSÍ eða sambærilega menntun.
Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar veitir Ásmundur í síma 581-3244.