The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140821081950/http://www.ksi.is/fraedsla/nr/8796
Fræðsla
Þjálfari að störfum

Tvö KSÍ I þjálfaranámskeið verða haldin í október

Þátttökugjald er 15.000 krónur

13.9.2010

Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 1.-3. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 8.-10. október.

Bókleg kennsla fer fram í fræðslusetri KSÍ og verkleg kennsla í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi.

Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á [email protected] eða með því að hringja í síma 510-2977.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við skráningu: Nafn, kennitala, heimilisfang, gsm-símanúmer, tölvupóstfang, félag (ef við á) og hvort námskeiðið þið óskið eftir að sækja (1.-3. október eða 8.-10. október). Þátttökugjald er kr. 15.000,-

Dagskrá námskeiðanna má sjá hér að neðan.

Dagskrá KSÍ I 1. - 3. október

Dagskrá KSÍ I 8. - 10. október











2011Forsidumyndir2011-001