The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20140821003950/http://www.ksi.is/fraedsla/nr/10004
Fræðsla
Leikmenn Breiðabliks og Þróttar þakka fyrir leikinn eftir leik liðanna í 7. flokki B á Norðurálsmótinu á Akranesi

Súpufundur KSÍ verður haldinn í hádeginu föstudaginn 30. mars

Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ fjalla um fæðingardagsáhrif í knattspyrnu

26.3.2012

 

Næsti súpufundur KSÍ verður haldinn föstudaginn 30. mars.  Að þessu sinni mun Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ, fjalla um fæðingardagsáhrif í knattspyrnu.  Þetta málefni hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu og meðal annars var Sigurður Ragnar í viðtali á Bylgjunni nýverið vegna þessa.  Viðtalið má nálgast hér: http://vefutvarp.visir.is/upptokur?itemid=10282

Líkt og áður hefur verið á þessum fundum verður fyrirkomulagið 30-40 mínútna fyrirlestur og svör við spurningum.  Jafnframt mun KSÍ bjóða gestum upp á súpu og brauð á þessum fyrirlestri og því upplagt að skella sér í heimsókn til KSÍ, hlýða á áhugavert erindi og fá sér hádegismat í leiðinni.

Þessi áttundi fræðslufundur verður haldinn föstudaginn 30. mars klukkan 12:15 á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll. 

Aðgangur er ókeypis og opinn öllum áhugasömum en þó þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á [email protected] og taka fram nafn, kennitölu og netfang.











2011Forsidumyndir2011-001