Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0400 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

FRÉTTIR

Vestfirðingar taka höndum saman um Öruggari Vestfirði

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum, sýslumaðurinn á Vestfjörðum, sveitarfélögin Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Súðavíkurhreppur, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Menntaskólinn á Ísafirði, Framhaldsskóladeild …

Jafnréttisáætlun embættisins og jafnlaunastefna.

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur endurnýjað jafnréttisáætlun embættisins og jafnlaunastefnu þess, sjá meðfylgjandi viðhengi. Jafnréttisáætlun LVF Jafnlaunastefna LVF    

Lögreglan á Vestfjörðum

Lögreglan á Vestfjörðum

Hafnarstræti 1
400 Ísafirði
Beinn sími: 444 0400
Þjónustusími allan sólarhringinn: 444 0400
Netfang: [email protected]

Með lögreglustjórn í umdæminu fer lögreglustjórinn á Vestfjörðum með aðsetur á Ísafirði.

Sveitarfélög í umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum eru:
Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur.

Vestfirðir skiptust áður í fimm sýslur: Austur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Ísafjarðarsýslu, Norður-Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu en í dag er venja að tala fremur um Barðastrandarsýslur, Ísafjarðarsýslur og Strandir.

Barðastrandarsýslur ná frá syðsta hluta Vestfjarðarkjálkans, frá botni Gilsfjarðar að austanverðu út á Látrabjarg að vestan og norður að Langanesi í Arnarfirði. Margar eyjar Breiðafjarðar tilheyra sýslunni.

Strandasýsla heitir eftir strandlengjunni frá Hrútafirði norður að Geirólfsnúpi.
Ísafjarðarsýslur taka yfir landsvæðið frá Langanesi í Arnarfirði allt norður í Horn og þaðan í Geirólfsnúp við sunnanverðan Reykjafjörð, þar sem sýslumörk Ísafjarðar- og Strandasýslu eru.

Þannig nær umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum yfir nær allan Vestfjarðarkjálkann að undaskildum Bæjarhreppi í Strandasýslu, en hann sameinaðist Húnaþingi Vestra þann 1. janúar 2012. Umdæmið nær norður Strandir og fyrir Hornbjarg, suður fyrir Látrabjarg til Gilsfjarðar. Sýslumörk eru áfram við Vestur-Húnavatnssýslu í austri, Mýrasýslu og Dalasýslu í suðri.

Flatarmál Vestfjarða er 9.356 ferkílómetrar. Þar af eru eyjar og sker 21.5 ferkílómetrar. Til samanburðar er flatararmál Íslands, með eyjum og skerjum, 102.712 ferkílómetrar. Embættinu tilheyrir ein lengsta strandlengja landsins eða rúmlega 2000 km. Strandlengja Íslands er í heild 4970 km. Stofn- tengi- og landsvegir, auk héraðsvega að öllum byggðum bæjum sem hafa ábúendur (lögheimili) í umdæminu, eru samtals 1553 km.

Íbúar í umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum 1. janúar 2014 voru 6972 og skiptust þannig eftir sveitarfélögum:
Bolungarvíkurkaupstaður 950, Ísafjarðarbær 3639, Súðavíkurhreppur 202, Árneshreppur 53, Kaldrananeshreppur 105, Strandabyggð 506, Reykhólahreppur 271, Vesturbyggð 949 og Tálknafjarðarhreppur 297.

Lögreglustöðvar eru á Ísafirði, Hólmavík og á Patreksfirði og lögreglumenn eru 20 talsins.

Lögreglan á Vestfjörðum Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons

Heimsókn í Grunnskólann á Þingeyri.

Í vikunni heimsóttu lögreglumenn börn í grunnskólanum á Þingeyri. Við spjölluðum við þau í þremur hópum og fræddum þau um atriði sem eru viðeigandi fyrir hvert aldursbil. Öll voru þau sammála um að þau ætli nota hjálm á hjólunum sínum og vera kurteis í samskiptum við aðra 🤝

Í lok heimsóknarinnar fengu þau öll að skoða og prufa að sitja í lögreglubílnum. Einnig fengu þau endurskinsmerki að gjöf sem nýtist vel seinnipartinn í sumar þegar að það fer að rökkva aftur 🌑

Takk kærlega fyrir að leyfa okkur að koma í heimsókn 😄
... Sjá meiraSjá minna

Heimsókn í Grunnskólann á Þingeyri. 

Í vikunni heimsóttu lögreglumenn börn í grunnskólanum á Þingeyri. Við spjölluðum við þau í þremur hópum og fræddum þau um atriði sem eru viðeigandi fyrir hvert aldursbil.  Öll voru þau sammála um að þau ætli nota hjálm á hjólunum sínum og vera kurteis í samskiptum við aðra  🤝

Í lok heimsóknarinnar fengu þau öll að skoða og prufa að sitja í lögreglubílnum. Einnig fengu þau endurskinsmerki að gjöf sem nýtist vel seinnipartinn í sumar þegar að það fer að rökkva aftur 🌑 

Takk kærlega fyrir að leyfa okkur að koma í heimsókn 😄Image attachmentImage attachment

10 CommentsComment on Facebook

Endurskinsmerki, ættu allir að hafa á sér, allan ársins hring. Bílar aka með ljósum, til að sjást betur í umferðinni og sama gildir um endurskinsmerki. Einnig að hafa endurskinsmerki á hækjum, göngugrindum og hlaupahjólum (rafdrifnum sem órafdrifnum).

Vel gert 👌

Mikið er þetta flott verk

Alltaf mikilvægt að vera sýnileg og svara spurningum sem brenna á börnum? Frábært framtak.

Vel gert 💪

View more comments

Gleðilegt sumar.

Við fögnum birtunni og vonum að allir njóti sumarsins. Vonum að þetta sé síðasti snjórinn þetta sumarið.
... Sjá meiraSjá minna

Gleðilegt sumar.

 Við fögnum birtunni og vonum að allir njóti sumarsins. Vonum að þetta sé síðasti snjórinn þetta sumarið.

23 CommentsComment on Facebook

Gleðilegt sumar

gleðilegt sumar

GLEÐILEGT SUMAR

Gleðilegt sumar 🍀🌞💞

Gleðilegt sumar

View more comments

Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram