Víðsjá - des. 1946, Blaðsíða 45
ÁHRIF LITANNA
43
ljósgula, en endurskin gula lit-
arins verður blátt. Hann sann-
aði nú fyrir eigendunum, hvern-
ig þetta bláleita endurskin „eitr-
aði“ útlit vörunnar í augum við-
skiptavinarins. Purpuralitur
blær féll á hið nýja, rauða kjöt
og þá virtist það vera gamalt
og skemmt. Hann mælti með
lit, sem hefði þau áhrif, að rauði
liturinn á kjötinu kæmi sem
bezt í ljós. Kjötbúðin var enn
máluð og í þetta sinn í blágræn-
um litblæ. Kjötið leit betur út
en nokkru sinni fyrr, nýi litur-
inn kom því til að sýnast enn
rauðara en það var í raun og
veru, en beinin sýndust mjalla-
hvít.
Litur getur einnig gert gagn
sem ágæt vörn gegn mýbiti. Sér-
fræðingur einn gefur eftirfar-
andi ráð: Láttu lampa með bláu
ljósi einhvers staðar þar sem þú
þarft sízt að vera. Láttu hins
vegar lampa með rauðu ljósi,
þar sem þú ætlar að vinna.
Rauða ljósið fælir mýið í burtu.
Það er greinilegt, að fyrir
skordýrunum samlagast bláa
ljósið himingeimnum. Rautt
táknar hættu — einnig í heimi
skordýranna, og þau forðast
alltaf rautt, að undanteknum
þeim skordýrum, sem sjálf eru
rauð. Ávaxtaframleiðendur, sem
eiga við lýs og önnur slík skor-
dýr að stríða, eru vanir að koma
neon-ljósum fyrir í stórum
brennurum, en þau lokka til sín
meindýrin og drepa þau í þús-
undatali.
Það hefur margsinnis sýnt sig
í viðskiptalífinu, að undraverð-
um árangri er hægt að ná, með
því að nota liti á réttan hátt.
Þegar fræsölufirma nokkurt
breytti um lit á verðskránni —
úr svörtu og hvítu í líflegri liti
— fjórfaldaðist meðaltal söl-
unnar. Matsölustaður tvöfaldaði
næstum umsetninguna á salati
með því að bera það á borð á
grænum diskum í stað hvítra
áður. Tilraunir með eggjasölu
hafa sannað, að hvít egg seljast
bezt í hvítum pappaumbúðum
með blárri rönd, aftur á móti
brún egg í umbúðum með hvítri
rönd. — Raftækjaverksmiðja í
Bandaríkjunum missti af sölu
á straujámum fyrir 250.000
dollara aðeins vegna þess, að
handfangið var svart. Framsýnn
keppinautur gat aftur á móti
afgreitt sams konar straujárn
með rauðu handfangi — og
hann fékk pöntunina. Þekkt
fyrirtæki í amerískri stórborg
hóf eitt sinn auglýsingaherferð
vegna karlmannafata í svörtu
og hvítu. Ágóðinn varð 35000
dollarar. Skömmu síðar skar
fyrirtækið upp nýtt herör vegna
þessara sömu fata — með þeim
mismun einum, að nú voru þau
VIÐSJA